Þýðingar.is gætir fyllsta trúnaðar um öll samskipti við viðskiptavini og efni sem fyrirtækið fær, og fyrirspurnir sem fyrirtækið fær sendar, hvort heldur sem þær leiða til viðskiptasambands eða ekki. Allir starfsmenn Þýðingar.is hafa skrifað undir trúnaðarsamning (leyndarsamning) sem er í gildi meðan starfsmenn vinna fyrir Þýðingar.is og eftir að þeir hverfa úr þjónustu þess. Að auki skrifa þeir verktakar sem Þýðingar.is vinnur með undir trúnaðaryfirlýsingu varðandi allt efni sem þeir sjá.
Trúnaðarsamningar
Allt starfsfólk Þýðingar.is hafa skrifað undir trúnaðarsamning sem heldur gildi sínu eftir að starfsmenn láta af störfum. Samningurinn tekur til allra samskipta vegna fyrirspurna eða verkbeiðna sem og allra gagna sem starfsfólk kann að meðhöndla í störfum sínum.
Lokuð kerfi
Öll textavinnsla fer fram í lokuðum kerfum sem eingöngu verkefnastjórar okkar hafa aðgang að. Öll samskipti eru skráð og vistuð á gagnagrunnum á Íslandi.